Færsluflokkur: Bloggar
18.11.2007 | 22:05
Tengsl við atvinnulíf í skólastarfi
Námskeiðið Tengsl við atvinnulíf í skólastarfi var haldið í KHÍ dagana 16. og 17.nóvember, kennarar voru Svanborg R. Jónsdóttir og Gísli Þorsteinsson. Seinni dagur námskeiðsins var um notkun forritsins Prodesktop í nýsköpunarvinnu. Þátttakendur á námskeiðinu voru kennarar af höfuðborgarsvæðinu, Akranesi, Suðurnesjum og Borgarnesi. Fullt var á námskeiðið og biðlisti er eftir næsta námskeiði.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.10.2007 | 23:19
Frumkvöðlamót á Hótel Borg
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.9.2007 | 18:04
Viðtal við Lasse og Ebbe
Eftir fyrirlestur Ebbe og Lasse bauð Menntamálaráðuneytið þeim út að borða á Þremur frökkum ásamt stjórn FÍKNF.
Lasse til vinstri og Ebbe til hægri
Lasse er fæddur í Kaupmannahöfn, 4. júní 1964. Hann er menntaður heimspekingur og uppeldisfræðingur og útskrifaðist frá háskólanum í Kaupmannahöfn 1995. Ebbe er fæddur á eyjunni Ærö 1959 en hann er menntaður barnaskólakennara.
Hvenær byrjaðuðu þið að sérhæfa ykkur í fumkvöða- og nýsköpunarfræðum?
Það var nú eiginlega fyrir tveimur árum. Þá sáum við auglýsingu í dönsku blaði þar sem verja átti talsverðu féi í þetta málefni. Þetta var 2005 en þá byrjuðum við að kenna þetta í menntunarfræðum í kennardeildinni í Kaupmannahöfn (Fredriskberg). Við vorum með verkefni þar sem nemendur áttu að gera framtíðarsýn fyrir skóla framtíðarinnar. Við settum þetta upp sem skemmtilegan hlutverkaleik.
Hvað gerðir Lasse áður en þið hófust handar við þetta?
Já ég var kennari frá 1998.
En þú Ebbe, hvað gerðir þú áður en þið fóruð í þetta verkefni?
Já ég var kennari, að kenna hjúkrunarkonum segir Ebbe og hlær. Ég útskrifast 1996 frá uppeldisfræðum í Háskólanum í Kaupmanna. Ég kenndi mikið frá 1987 í barnaskólum.
Hvenær byrjuðu þið að vinna saman og hvað hafið þið þekkst lengi?
Það var 2002 en þá byrjuðum við að vinna saman á námskeiðum svo við höfum þekst frá þeim tíma?
Hvernig kom það til að þið komu til Íslands?
Við heyrðum frá samstarfsfélaga okkar að að íslendingar hefðu nýsköpun- og frumkvöðlamennt í námskránni og við vildu kynna okkur það. Við vildum vita meira um þá sem eru á undan Dönum í nýsköpunar- og frumkvöðlafræðum.
Eftir þessa heimsókn til Ísland, var tilfinnining rétt að íslendingar hefðu forskot á Dani í þessum málum?
Já, einmitt. Þið hafið keppnir. Þið vinnið á kerfisbundinn hátt eftir aðferðum og áætlunum. Við sáum t.d. í heimsókn í grunnskóla í Keflavík að þar var mjög mikið efni tilbúið og þróað. Þar er smíði og nýsköpun tvinnuð saman. Íslendingar eru fókusaðir á afurðir, vöru eða gagnlega hluti. Danir eru meira í menningabundinni nýsköpunar, t.d. að búa til tónleika, kaffihús, leikrit o.s.frv. Danska ríksistjórnin er t.d. að biðja um þá hæfileika í öllum stofnunum þ.e. að fólk sýni frumkvæði og nýsköpun í öllum störfum.
Lasse og Ebbe hafa farið í heimsóknir víða um land, t.d. menntamálaráðuneytið, grunnskólan í Keflavík til að sjá nemendur vinna og Háskólann í Reykjvík. Síðasta ára voru þeir í Noregi og eru að leitast við að mynda tengslanet um Norðurlöndin.
Hverning fannst ykkur svo dvölin hérna í þessa viku sem þið voru?
Það er náttúrlega náttúruna, hún er ótrúleg. Það er margt mjög sérstakt, t.d. menningin sem fer 1000 ár aftur. Svo eru íslendingar að alþjóðavæðast og menningin að okkar dómi mjög dínamískst, þ.e. góð í því að tvinna saman hefð en líka að taka inn nýja hluti og læra. Það er nauðsynlegt til að lifa af í alþjóðavæðingunni og lifa af á þessari vindugu eyju segir Lasse og hlær. Lasse og Ebbe segja svo í gríni að þeir séu líka hérna til að finna út af hverju íslendingar séu svona aðgangsharðir í Danmörku og segja að hljóti að vera út af íslensku eldvirkninni.
Bloggar | Breytt 15.10.2007 kl. 23:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.9.2007 | 15:11
Fyrirlestur Lasse Skånstrøm og Ebbe Kromann í Kennarháskólanum.
Svanborg R. Jónsdóttir flutti í upphafi fyrirlestur um stöðu nýsköpunar- og frumkvöðlamenntunar í íslenska skólakerfinu. Farið var yfir hvað nýsköpunar- og frumkvöðlaverkefni væru í gangi á Íslandi og hvaða hindrunum fagið mætti. Í umræðum kom fram að nokkur munur væri á áherslum í nýsköpunar- og frumkvöðlamennt milli Danmörku og Íslands þar sem þrýstingurinn á þessari kennslu kæmi frá stjórnvöldum í Danmörku en grasrót kennara hér á Íslandi. Þetta má skýra m.a. af þeirri ólíku menntamenningu Dana og Íslendinga þar sem Danir hafa raunverulega trú á hagnýtingu þekkingar á meðan Íslendingar geta reitt sig á aðrar auðlindir.
Anna Kristín Sigurdóttir stýrði fundinum.
Lasse Skånstrom (sjá grein sem hann dreifði) varpaði fram þeirri spurningu hvað nýsköpunar- og frumkvöðlamennt væri og svaraði því að þetta væri ný kennslufræðileg hugmyndafræði og aðferðafræði um það hvernig nemendur lærðu. Umræðan um nýsköpunar- og frumkvöðlakennslu í Danmörku snýst um það að hvað leiti efnið og færni nýsköpunar- og frumkvöðlamenntunar nýttist. Lasse tók dæmi um nokkrar hugmyndafræðilegar breytingu sem frumkvöðlakennarinn þarf að vera meðvitaður um og rökstuddi að það hefur átt sér viss þróun frá því að litið er á nýsköpunar- og frumkvöðlafræði sem námsefni til náms sem reynir á verklega hæfileika krakka.
Ebbe Kromann ræddi um það að nýsköpunar- og frumkvöðlamenntin þyrfti að koma sér upp tungumáli til að öðlast virðingu samfélagsins. Hann svaraði m.a. þeirri spurningu hvort nýsköpunar- og frumkvöðlakennsla skilaði árangir og hann svaraði að svo væri. Nemendur í grunskóla gætu t.d. leyst verkefni á borð við það að búa til leik fyrir yngri krakka sem verður að teljast áhugaverð afurð. Þeir leysa raunhæf verkefni t.d. í sögu þar sem þeir nota söguþekkinguna til að skemmta sér í hlutverkaleik. Þar hefur þekkingin öðlast hagnýtan tilgang og fer út fyrir þau leiðindi sem fylgir skriflegum lokaprófum. Verkefnin byggja á framtíðasýn en ekki endilega vandamáli. Þannig aðgreinir nýsköpunar- og frumkvöðlafræði sig frá lausnarleitinni. Námið er stýrt af framtíðarsýn. "Við ætlum að nýta þekkingu okkar til að setja leikrit á svið", gæti hinn framsýni fyrirnemandi sagt!
Ráðleggingar Lasse og Ebbe til íslendinga voru þær að fella nýsköpunar- og frumkvöðlafræði inn í öll fög. Í starðfræðinni, sögunni o.s.frv.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.9.2007 | 11:25
Grein um nýsköpunar- og frumkvöðlamennt í Blaðinu
Þann 18. september 2007 birtist grein í Blaðinu um nýsköpunar- og frukvöðlamenn eftir Einar Örn Jónsson sem við fengum leyfi til að birta hér á bloggsíðu FÍKNF.
"Nýsköpun og frumkvöðlamennt Nýsköpunar- og frumkvöðlamennt í skólumÝtir undir sköpunargáfuna
Þrátt fyrir að kveðið sé á um nýsköpunar- og frumkvöðlamennt í aðalnámskrá grunn- og framhaldsskóla er þessum þætti lítið sinnt hér á landi að mati Svanborgar R. Jónsdóttur, formanns Félags íslenskra kennara í nýsköpunar- og frumkvöðlamennt (FÍKNF). Það er gott að þessar greinar séu komnar í námskrár bæði grunn- og framhaldsskóla en það fylgir þeim ekki svokölluð tímaúthlutun sem gæti verið ein skýringin á því að þeim er lítið sinnt hér á landi þrátt fyrir að þær sé í námsskrá, segir hún.Mér finnst að yfirvöld mættu fylgja námskránni betur eftir og kynna þessar námsgreinar fyrir skólafólki, almenningi og atvinnulífinu. Þær geta verið mjög öflugar ef þeim er vel sinnt.Önnur nálgun kennara
Svanborg segir að menntun kennara hér á landi sé lítil í nýsköpunar- og frumkvöðlamennt en bendir jafnframt á að kennarar sem sinni þessum greinum hafi stofnað með sér félagsskap sem meðal annars hafi það að markmiði að bæta þekkingu á þessu sviði. Við höfum fengið styrki til að halda námskeið fyrir kennara og eins erum við að reyna að ýta svolítið við yfirvöldum um að marka aðeins skýrari stefnu, segir hún. Þeir kennarar sem á annað borð kynnast nýsköpunar- og frumkvöðlamennt fá yfirleitt mikinn áhuga á að efla þátt þeirra í skólastarfi enn frekar að sögn Svanborgar. Þetta býður kannski upp á svolítið aðra nálgun fyrir kennarann en í hefðbundinni kennslu. Það er meira byggt upp á sjálfstæði nemenda og að hlutverk kennarans sé frekar að aðstoða og styðja við þá en ekki að taka stjórnina eins og er kannski oft í öðrum greinum. Þá er mikið lagt upp úr frumkvæði nemenda og að þeir komi sjálfir með hugmyndir og finni út úr hlutunum, segir Svanborg.Sjá meiri tilgang
Að mati Svanborgar hefur nýsköpunar- og frumkvöðlanám mikið gildi til dæmis fyrir börn á grunnskólaaldri. Þarna er verið að ýta undir sköpunargáfuna en skólakerfið hefur verið svolítið gagnrýnt fyrir að drepa hana of mikið niður. Þarna fá þau líka tækifæri til að nýta svo margt sem þau eru að læra í skólanum, til dæmis listgreinar, stærðfræði, íslensku og smíði, segir hún. Auk þess að bjóða upp á samþættingu ólíkra námsgreina gerir nýsköpunar- og frumkvöðlamennt nemendum kleift að hagnýta ýmislegt sem fram að þessu hafa aðeins verið tölur eða orð á blaði. Þau sjá meiri tilgang í mörgu af því sem þau eru að læra, segir Svanborg sem kenndi sjálf þessa námsgrein í tíu ár. Hún segir að nemendur hafi almennt verið áhugasamir um námið og virkir. Mér fannst líka að fleiri nemendur nytu sín í þessu en almennt. Þeir nemendur sem eru á annað borð áhugasamir um nám eru það í flestum greinum en þarna voru fleiri sem nutu sín og fannst að þeir gætu gert eitthvað, segir Svanborg.Nýsköpunarkeppni grunnskóla
Ýmislegt gott hefur verið gert á sviði nýsköpunar- og frumkvöðlamenntunar hér á landi á undanförnum árum og er árleg Nýsköpunarkeppni grunnskólanna gott dæmi um það. Hún er haldin einu sinni á ári hér á landi sem er mjög gott því að til dæmis í Svíþjóð er hún haldin fjórða hvert ár. Keppnin hvetur marga til dáða og ég held að það hafi borist um 3000 hugmyndir núna, segir Svanborg en til samanburðar má benda á að þegar keppnin var fyrst haldin árið 1992 voru hugmyndirnar 75. Lokahóf keppninnar verður haldið í Grafarvogskirkju 30. september næstkomandi og þar mun Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, veita verðlaun fyrir bestu hugmyndirnar. Á föstudag verður aftur á móti haldin málstofa um nýsköpunar- og frumkvöðlamennt á Íslandi og í Danmörku í Kennaraháskóla Íslands. Þar mun Svanborg fjalla um stöðu mála hér á landi og kynna FÍKNF. Þá munu kennarar frá Kennaraháskólanum í Fredriksberg fjalla um stöðu nýsköpunar- og frumkvöðlamenntar í danska skólakerfinu og stefnu stjórnvalda á því sviði.Málstofan fer fram í stofu E-304 og stendur frá kl. 14-16. Hún fer fram á ensku og er öllum opin."
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.9.2007 | 22:30
Flug sköpunarstéttanna
Í fréttum Stöðvar 2 (frá 10. september 2007) er sagt frá því að Íslendingar séu í fremstu röð samkvæmt bandarískum list í því sem kalla má "hnattræn sköpunargáfa". Bandaríski prófessorin Richard Florida hrósar Íslendingum í hástert fyrir sköpunarþrótt í nýlegri metsölubók sem kallast "Flug sköpunarstéttanna". Hér er fréttin:
Daginn eftir birtist áhugaverð skýring á velgengni íslensku útrásarfyrirtækja sem sjá má í þessari frétt á vísi.is.
Íslendingar eru þá svona umburðalyndir! Það skýrir þessa meintu velgengni
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.9.2007 | 17:29
"... og þetta tengdist bara öllu"
Málstofa um nýsköpunar- og frumkvöðlamennt á Íslandi og Danmörku
verður haldin í Kennaraháskóla Íslands í stofu E-304 föstudaginn 21.september kl 14-16
Ég var einu sinni í skóla á Egilsstöðum og var þá í nýsköpun. Við vorum að skapa eitthvað og búa til og það var rosa gaman. Mér fannst þetta vera list og verkgrein og þetta tengdist bara öllu. Þetta tengdist tækni, náttúrufræði, stærðfræði, myndmennt og smíði, bara allt í einu. (Tilvitnun í nemanda úr rannsóknum)
Dagksrá málstofu:
1. Staða nýsköpunar- og frumkvöðlamenntar í íslenska skólakerfinu - Félag íslenskra kennara í nýsköpunar- og frumkvöðlamennt (FÍKNF) kynnt .
Formaður FÍKNF Svanborg R Jónsdóttir kynnir .
2. Staða nýsköpunar- og frumkvöðlamenntar í danska skólakerfinu - Ebbe Kromann segir frá starfi sínu og félaga í Kennaraskólanum við Fredriksberg og stöðu nýsköpunar- og frumkvöðlamenntar í danska skólakerfinu og stefnu stjórnvalda á þessu sviði.
3. Fyrirspurnir og umræður.
Málstofan fer fram á ensku og er öllum opin
kaffi á könnunni
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.8.2007 | 16:35
Námskeið á Hofsósi
Eins dags námskeið í nýsköpunarmennt var haldið í Grunnskólanum á Hofsósi fyrir starfandi kennara miðvikudaginn 22.ágúst sl. en það sóttu 10 kennarar úr Grunnskólanum að Hólum, Grunnskólanum á Hofsósi og á Sólgörðum. Enn bættist við félagatal FÍKNF þar sem sjö þátttakendur kusa að gagna í félagið. Námskeiðið þótti takast vel en reiknað er með framhaldi í nóvember. Kennararnir sem sóttu námskeiðið reyndust hugmyndaríkir og frumlegir og sjást hér með veggmyndir af vörum sem eiga eftir að slá í gegn. Stjórnandi námskeiðsins var Svanborg R. Jónsdóttir formaður FÍKNF.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.8.2007 | 11:14
FÍKNF kynnt á endurmenntunarnámskeiði SKVOH
Félag íslenskra kennara í nýsköpunar- og frumkvöðlamennt kynnti starfsemi sína á endurmenntunar námskeiði Samtaka kennara í viðskipta og hagfræðigreinum (SKVOH). Kynningin á FÍKNF var fléttuð aftan við skemmtilegan fyrirlestur Jennýar Jóakimsdóttur um fyrirtækjasmiðjur Junior Achievement. Í kynningunni um FÍKNF var lögð var áhersla á að FÍKNF væri fagfélag ætlað kennurum á öllum skólastigum, frá leikskóla til háskóla. Félagsmönnum SKVOH var kynnt Tíran og hugmyndin á bak við hana.
Áhugavert var að heyra frá þeim framhaldsskólakennurum sem höfðu unnið JA keppnina og farið erlendis með nemendur í framhaldskeppni.
Ásgeir Valdimarsson sýndi myndir frá Berlínarferð sem hann fór með vinningshópnu sínum í JA keppninni síðastliðið vor.
Hugmyndaauðgi keppanda í úrslitakeppninni átti sér fá takmörk en hér eru tveir breskir strákar sem höfðu stofnað fyrirtæki sem tók að sér að skipuleggja íþróttamót og fínar veislur. Búningarnir eru við hæfi!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.8.2007 | 09:40
Fyrsti stjórnarfundur KVENN
Fimmtudaginn 9. ágúst var fyrsti stjórnarfundur nýstofnað félags uppfinninga og frumkvöðlakvenna sem kallast KVENN. Fundur var haldinn á Kaffi Krús á Selfossi.
Stjórn frá vinstri: Þuríður Guðmundsdóttir uppfinningakona hönnuður MOA og TÆR snyrtivaranna, María Ragnarsdóttir varaformaður KVENN,uppfinningakona á sviði hjúkrunartækja, Dórotea Höeg Sigurðardóttir uppfinningakona og verkfræðinemi, Elinóra Inga Sigurðardóttir formaður KVENN, uppfinningakona, Svanborg R. Jónsdóttir doktorsnemi í nýsköpunarmennt, Kolbrún Hjörleifsdóttir skólastjóri, frumkvöðull á sviði nýsköpunarkennslu í íslenskum grunnskólum, Ágústína Ingvarsdóttir gjaldkeri KVENN, sálfræðingur og uppfinningakona.
Stofnfundur KVENN (erlend heiti QUIN-Iceland og IWIIN- Icelandic Women Inventors and Innovators Network), sem er tengslanet uppfinninga- og frumkvöðlakvenna var haldinn í Perlunni 11.júlí síðastliðinn. Þar voru mættar konur sem allar fást við nýsköpun á ýmsum sviðum. M.a. þær sem hafa fengið alþjóðlegar viðurkenningar fyrir nýsköpun sína og ungar konur sem hafa tekið þátt í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna.
Tengslanetið KVENN mun hafa það markmið að gera konur sýnilegri á sviði uppfinninga og frumkvöðlastarfsemi. KVENN mun verða í mjög nánu norrænu og alþjóðlegu samstarfi við að vekja athygli á nýsköpun kvenna og búa þar með til jákvæðar fyrirmyndir fyrir komandi kynslóðir.
KVENN mun leitast við að vera í samstarfi við hin ýmsu félög, skóla og atvinnulíf, til þess að ná því markmiði sínu að gera konur sýnilegri og afkastameiri á sviði uppfinninga og í frumkvöðlastarfsemi.
Bloggar | Breytt 14.8.2007 kl. 09:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Félag íslenskra kennara í nýsköpunar- og frumkvöðlamennt
Færsluflokkar
Tenglar
Heimasíður
http://www.inet.is/fiknf/
- JA Junior Achivement
- Snilliheimar Nýsköpunarsíða Jónu Bjarkar Jónsdóttur
- FORM Samtök hönnuða Form Ísland
- Nýsköpunarkeppni grunnskólanna NKG
- FÍKNF
- Impra á Nýsköpunarmiðstöð Impra á Nýsköpunarmiðstöð veitir upplýsingar og leiðsögn fyrir frumkvöðla og lítil fyrirtæki. Impra er annað kjarnasviða Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands með skrifstofur í Reykjavík, á Akureyri, Egilsstöðum, Húsavík, Höfn, Ísafirði, Sauðárkróki og Vestmannaeyjum.
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar